2017-05-22 18:06:05 CEST

2017-05-22 18:06:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 20. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.142.223 eigin hluti fyrir
123.406.196 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin   Tími      Keyptir  Viðskipta-ve     Kaupverð      Eigin hlutir eftir
g                      hlutir            rð                            viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
16.5.2017  11:04      350.000         106,5   37.275.000               2.829.308
--------------------------------------------------------------------------------
17.5.2017  14:17       92.223         108,5   10.006.196               2.921.531
--------------------------------------------------------------------------------
18.5.2017  12:42      350.000         108,5   37.975.000               3.271.531
--------------------------------------------------------------------------------
19.5.2017  14:50      350.000           109   38.150.000               3.621.531
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals             1.142.223                123.406.196                        

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 24. mars 2017. 

Reitir hafa nú keypt samtals 3.621.531 hluti í félaginu sem samsvarar 24,14% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 378.392.536 krónum sem samsvarar
25,23% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú
samtals 3.621.531 hluti, eða 0,50% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á
aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við
hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.