2017-05-22 19:37:55 CEST

2017-05-22 19:37:55 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Síminn hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Síminn: Reglubundin tilkynning um kaup Símans á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 20. viku 2017 keypti Síminn hf. 15.000.000 eigin hluti að kaupverði
62.800.000 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir: 

Dagsetning   Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð  Kaupverð (kr.)
----------------------------------------------------------------
 16.5.2017  14:37       5.000.000           4,18      20.900.000
 18.5.2017  11:12       5.000.000           4,19      20.950.000
 19.5.2017  14:10       5.000.000           4,19      20.950.000
----------------------------------------------------------------
                       15.000.000                     62.800.000

Síminn átti ekki eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 15.000.000
eigin hluti eða sem nemur 0,16% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í  Kauphöll
Íslands hf. þann 15. maí 2017. 

Síminn hefur keypt samtals 15.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 0,16% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
62.800.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.102
milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2018, en
þó aldrei lengur en til 16. mars 2018 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru
uppfyllt fyrir þá dagsetningu. 

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og
II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og
markaðssvik. 

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í
netfangi fjarfestatengsl@siminn.is