|
|||
2008-12-16 16:55:30 CET 2008-12-16 16:56:31 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 09 0127 og RIKV 09 0320Föstudaginn 19. desember kl: 11:00 fer fram útboð í tveimur flokkum ríkisvíxla með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudaginn 23. desember 2008. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka ríkisvíxla: Flokkur Gjalddagi Lánstími RIKV 09 0127 27. janúar 2009 1 mánuður RIKV 09 0320 20. mars 2009 3 mánuðir Ofangreindir flokkar verða skráðir í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi mánudaginn 29. desember 2008. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|