|
|||
2009-11-12 10:20:44 CET 2009-11-12 10:21:57 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirMoody‘s lækkar lánshæfiseinkunn LandsvirkjunarMatsfyrirtækið Moody‘s Investor Service hefur lækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar vegna erlendra skuldbindinga úr Baa1 með neikvæðum horfum í Baa3 með stöðugum horfum. Lánshæfi á innlendum skuldbindingum lækkar einnig úr P-2 í P-3. Lækkunin kemur í kjölfar sambærilegrar lækkunar ríkissjóðs. Landsvirkjun fékk fyrst lánshæfiseinkunn árið 1998 og hefur ávalt haft sömu einkunn og ríkissjóður hjá Moody‘s. Í lánssamningum Landsvirkjunar eru engin ákvæði sem kalla á uppsögn eða breytingar þó að lánshæfismat lækki. Breytingin nú hefur því engin áhrif á vaxtakjör á eldri lánum fyrirtækisins. Breytingin hefur hins vegar, að öllu öðru óbreyttu, neikvæð áhrif á aðgengi Landsvirkjunar að nýju lánsfjármagni á ásættanlegum kjörum. Nánari upplýsingar gefur Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9000 og 892-7912. |
|||
|