2012-11-14 09:58:52 CET

2012-11-14 09:59:54 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar


Skattar lækka í Kópavogi

Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir næsta ár var lögð fram á
bæjarstjórnarfundi nú síðdegis sem hófst kl. 16:00. Með fylgir tillagan sem og
tilkynning til fjölmiðla. 



Skattar lækka í Kópavogi



Fasteignagjöld af íbúðar- og atvinnuhúsnæði, vatnsskattur og sorphirðugjöld
lækka í Kópavogi í upphafi næsta árs, samkvæmt tillögu meirihluta bæjarstjórnar
að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013. Tillagan var lögð fram til fyrri umræðu á
bæjarstjórnarfundi síðdegis í dag. 



Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri segir að með fjárhagsáætluninni sé tónninn
gefinn og fyrstu skrefin tekin að lækkun á skattbyrði íbúa bæjarins. „Er þetta
í samræmi við stefnuyfirlýsingu meirihlutans um að fasteignagjöld á íbúðir og
fyrirtæki og önnur gjöld verði endurskoðuð með lækkun í huga,“ segir hann. 



Áhersla er lögð á lækkun skulda og reiknað með að inn á þær verði greiddir
rúmir tveir milljarðar á næsta ári. Gert er ráð fyrir að skuldahlutfall
Kópavogsbæjar, þ.e.a.s. skuldir sveitarfélagsins deilt með rekstrartekjum,
lækki úr 244% niður í 206%. Samkvæmt lögum eiga sveitarfélög að vera búin að ná
þessu hlutfalli niður fyrir 150% fyrir 1. janúar 2023. Ef fram heldur sem
horfir nær Kópavogsbær þessu viðmiði í síðasta lagi árið 2018. 



Markmiðum fjárhagsáætlunarinnar á að ná með þéttu aðhaldi í rekstri bæjarins án
þess að beita niðurskurði. Þjónustugjöld eru látin fylgja verðlagi. Lögð er
áhersla á að veita öfluga grunnþjónustu á öllum sviðum, svo sem í leikskólum,
grunnskólum og félagsþjónustu. Niðurgreiðsla bæjarins til íþróttaiðkunar barna
og unglinga hækkar um 12,5%. 

Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar verður 126 milljónir króna á næsta ári
samkvæmt áætluninni og veltufé frá rekstri 2.860 milljónir. Af framkvæmdum á
árinu má nefna byggingu nýs 870 fermetra leikskóla í Austurkór, sem tekinn
verður í notkun í ársbyrjun 2014. Kostnaður við byggingu leikskólans enmur
tæpum 307 milljónum króna. 

„Fjárhagsáætlunin sýnir að Kópavogsbæ er að takast að vinna hratt og vel úr
þeim vanda sem skapaðist í kjölfar efnahagsáfallsins árið 2008 og mun betur
heldur en raunsæir menn þorðu að vona en þar kemur til góður rekstur og sala
lóða,“ segir Ármann Kr. Ólafsson. 



Breyting gjalda:

  -- Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,32% í 0,29% (um 9,4)
  -- Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði lækkar úr 1,65% í 1,64% (um 0,6%)
  -- Fasteignaskattur á hesthús lækkar úr 0,625% í 0,59% (um 5,6%)
  -- Vatnsskattur lækkar úr 0,135% í 0,12% (um 11,1%)
  -- Sorphirðugjald lækkar úr 23.300 kr. í 21.000 kr. (um 9,9%)