2013-03-22 16:54:06 CET

2013-03-22 16:55:08 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Annual report (is)

Ársreikningur Hampiðjunnar fyrir árið 2013


Sölutekjur voru kr. 7,6 milljarðar og jukust um 6% frá fyrra ári. 
Rekstrarhagnaður (EBIT), án söluhagnaðar eigna, var kr. 1 milljarður og jókst
um 18% frá fyrra ári. 

Lykilstærðir (fjárhæðir í evrum og samanburðartölur fyrra árs í sviga):

Rekstrartekjur jukust um 6% og voru 45,2 milljónir (42,4 milljónir).
EBITDA af reglulegri starfsemi, var 7,8 milljónir (6,9 milljónir).
Hlutdeild í hagnaði HB Granda var 1,4 milljónir (3,5 milljónir).
Hagnaður ársins var 5,5 milljónir (7,3 milljónir).
Heildareignir voru 81,6 milljónir (79,5 milljónir).
Vaxtaberandi skuldir voru 24,5 milljónir (25,7 milljónir).
Eiginfjárhlutfall var 60% (58%).



Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 45,2 milljónir og jukust um 6% frá árinu áður.
 Rekstrarhagnaður af reglulegri starfsemi var 13,5% af rekstrartekjum eða 6,1
milljón en var 12,2% í fyrra eða 5,2 milljónir.  Fjármunatekjur ásamt hlutdeild
í hagnaði HB Granda að frádregnum fjármagnsgjöldum voru 0,4 milljónir til tekna
en voru 1,9 milljónir til tekna á fyrra ári.  Hagnaður ársins var 5,5 milljónir
en var 7,3 milljónir árið 2011. 

Efnahagur

Heildareignir voru 81,6 milljónir í árslok.  Eigið fé nam 48,7 milljónum, en af
þeirri upphæð eru 5,6 milljónir hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaganna
Swan Net Gundry á Írlandi og Fjarðaneta á Íslandi.  Hlutfall eigin fjár, þegar
hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í árslok 60% af heildareignum
samstæðunnar. Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 24,5 milljónum og lækkuðu um
1,2 milljónir frá ársbyrjun. 

Jón Guðmann Pétursson, forstjóri:

„Síðasta ár var þriðja árið í röð sem samstæðan nýtur söluaukningar vegna innri
vaxtar.    Rekstrarhagnaður félagsins hefur á þeim árum tvöfaldast,
vaxtaberandi skuldir lækkað um tæplega þriðjung og hlutfall eiginfjár af eignum
hækkað úr 48 í 60%. 

Afkoma móðurfélagsins, að meðtöldu dótturfélaginu í Litháen var betri á síðasta
ári en árið áður en afkoma annarra dótturfélaga var svipuð og á fyrra ári.
Almennt var góð eftirspurn eftir veiðarfærum hjá samstæðunni á árinu.  Góð
söluaukning var á ofurköðlum til olíuleitarskipa og annarra verkefna, mest
tengd olíuiðnaði.  Hampiðjan er eitt af fáum leiðandi fyrirtækjum í heiminum í
þróun ofurkaðla og er í færum til að ná árangri á mörkuðum sem krefjast
tæknilegra lausna úr ofurefnum. 

Hlutdeild í hagnaði HB Granda minnkaði verulega frá árinu áður vegna
raunvirðisrýrnunar hjá því félagi tilkomin vegna hækkunar auðlindagjalds.“ 



Ársreikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf.,  www.hampidjan.is.