2024-05-16 14:43:00 CEST

2024-05-16 14:43:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Marel: JBT hefur skilað inn skráningaryfirlýsingu samkvæmt eyðublaði S-4 til SEC


Marel hefur verið upplýst um að John Bean Technologies Corporation (JBT) hafi skilað inn skráningaryfirlýsingu samkvæmt eyðublaði S-4 til Verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna (U.S. Securities and Exchange Commission eða SEC) í tengslum við fyrirhugað yfirtökutilboð í allt útgefið og útistandandi hlutafé í Marel. Eyðublað S-4 er aðgengilegt hér á fjárfestavef JBT.