2007-12-13 11:05:31 CET

2007-12-13 11:05:31 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

- Vaxtaákvörðun


Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari
breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og
íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón
af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. 

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir því á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa
sem haldið var 13. nóvember, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa eru
5,05%. Vaxtaálag vegna rekstrar er  0,25%, vegna varasjóðs 0,20% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,25%, samtals 0,70% 

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir
íbúðalána sjóðsins hækki. 

Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins eru 5,50%, á lán með uppgreiðsluákvæði, en
5,75% á lán án uppgreiðsluákvæðis.