|
|||
![]() |
|||
2007-12-12 17:25:09 CET 2007-12-12 17:25:09 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir- Útboð vegna sölu íbúðabréfa, 10. áfangi 2007Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að efna til útboðs á íbúðabréfum í flokkunum HFF150914, HFF150224, HFF150434 og HFF150644. Íbúðalánasjóður stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 5 milljarðar króna að nafnverði. Íbúðalánasjóður áskilur sér rétt til að hækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Íbúðalánasjóðs við Kaupþing, Glitni, Landsbanka Íslands, Straum - Burðarás, MP fjárfestingabanka og Saga Capital Fjárfestingarbanka hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. Hér með er óskað eftir tilboði í frumsölu á íbúðabréfum gefnum út af Íbúðalánasjóði í samræmi við eftirfarandi lýsingu. Sjá viðhengi. Tilboð skulu berast til Fjármálasviðs Íbúðalánasjóðs, Höfðaborg, Borgartúni 21, Reykjavík fyrir kl. 9:00, fimmtudaginn 13. desember 2007. Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 09:45 sama dag. Tilboð skal senda Íbúðalánasjóði í lokuðum umslögum. Einnig má senda tilboð í tölvupósti til fjarstyring@ils.is eða með myndsendi í númer 569-6890 á tilboðsdegi ef það er staðfest fyrirfram með símtali við starfsmenn fjámálasviðs Íbúðalánasjóðs í síma 569-6990. |
|||
|