2016-03-10 17:42:45 CET

2016-03-10 17:42:45 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
HB Grandi hf. - Hluthafafundir

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund HB Granda hf. 1. apríl 2016


Aðalfundur HB Granda hf. verður haldinn föstudaginn 1. apríl 2016 í matsal
félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00.
Fundurinn fer fram á íslensku. 

Dagskrá

1.      Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.

2.      Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.

3.      Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.

4.      Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu

5.      Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.

6.      Kosning stjórnar félagsins.

7.      Kosning endurskoðenda.

8.      Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.

9.      Önnur mál, löglega upp borin.



Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 16:30



Tillögur

Tillaga um greiðslu arðs

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2016 verði vegna rekstrarársins 2015
greiddar 1,70 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 3.083 millj. kr. (um 21,9
millj. evra á lokagengi ársins 2015), eða 4,1% af markaðsvirði hlutafjár í lok
árs 2015.  Arðurinn verði greiddur 29. apríl 2016.  Síðasti viðskiptadagur þar
sem arður fylgir bréfunum er 1. apríl 2016 og arðleysisdagur því  4. apríl
2016. 

Arðsréttindadagur er 5. apríl 2016.  Arður greiðist þeim sem skráðir eru í
hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags. 

Tillaga félagsstjórnar að starfskjarastefnu

Í samræmi við ákvæði í starfsreglum starfskjaranefndar hefur nefndin útbúið
tillögu til stjórnar að starfskjarastefnu fyrir aðalfund 2016. Helstu
breytingar snúa að grein 1.1. – 3.1. og 5.1. 

Tillaga um þóknun til stjórnarmanna

Þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 240.000 kr. á mánuði og formaður fái
tvöfaldan hlut. 

Kosning endurskoðanda

Stjórn félagsins leggur til að Deloitte ehf. verði kjörinn endurskoðandi
félagsins. 

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu.
Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki
yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera
hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í
þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra
er. 

Aðrar upplýsingar

Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega,
minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Framboðum skal
skila á skrifstofu HB Granda, Norðurgarði 1 eða á netfangið
adalfundur2016@hbgrandi.is. Tilkynnt verður um framkomin framboð tveimur dögum
fyrir aðalfundinn. 

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef
hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á netfangið
adalfundur2016@hbgrandi.is með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á
dagskrá fundarins, 10 dögum fyrir fundinn. Þannig skulu óskir hluthafa liggja
fyrir eigi síðar en kl. 17:00 þriðjudaginn 22. mars 2016. 

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé.  Eigin bréf
félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. 

Heildarhlutafé félagsins nemur kr. 1.822.228.000 og fylgir eitt atkvæði hverjum
hlut. Eigin bréf félagins eru kr. 8.569.277 og virkt hlutafé félagins því
1.813.658.723. 

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá klukkan 16:30.

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn, geta:

a) veitt öðrum skriflegt umboð

b) greitt atkvæði skriflega

Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að
kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að.  Þar er að
finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað
til félagsins. 

Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur
félagsins og tillögur eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og
á skrifstofu félagsins á venjulegum skrifstofutíma.  Endanleg dagskrá og
tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. 

Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn má finna á vefsíðu félagsins
www.hbgrandi.is 



Stjórn HB Granda hf.