2016-03-14 09:00:32 CET

2016-03-14 09:00:32 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 10 keyptu Fjarskipti hf. 600.000 eigin hluti að kaupverði 27.750.000 kr.
eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími  Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
--------------------------------------------------------------------
  8.3.2016 14:22    300.000             46,40             13.920.000
--------------------------------------------------------------------
  9.3.2016 10:10    300.000             46,10             13.830.000
--------------------------------------------------------------------
   Samtals          600.000                               27.750.000




Fjarskipti  áttu 9.866.164 eigin hluti  fyrir viðskiptin og  eiga að þeim loknum
10.466.164 eigin hluti eða sem nemur 3,11% af útgefnum hlutum í félaginu.

Viðskiptin  eru  samkvæmt  endurkaupaáætlun  Fjarskipta  sem  tilkynnt  var um í
Kauphöll Íslands hf. þann 18. febrúar 2016.

Fjarskipti  hafa keypt samtals 1.371.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur  0,41% af  útgefnum  hlutum  í  félaginu  og  nemur heildarkaupverð þeirra
63.274.250 kr.  Endurkaup samkvæmt  áætluninni munu  nema að  hámarki 2.188.184
hlutum  eða sem nemur 0,65% af  útgefnum hlutum í félaginu,  en þó ekki meira en
100.000.000 kr.  að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er  í gildi til 17. mars 2016
nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður.

Framkvæmd   endurkaupaáætlunarinnar  er  í  samræmi  við  VIII.  kafla  laga  um
hlutafélög  nr.  2/1995 og  viðauka  við  reglugerð  um  innherjaupplýsingar  og
markaðssvik   nr.   630/2005, sem   ber  heitið  "Viðskipti  með  eigin  bréf  í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga."



Nánari upplýsingar veitir:

Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is




[HUG#1993877]