2012-11-26 17:17:12 CET

2012-11-26 17:18:13 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Hluthafafundir

Dagskrá hluthafafundar Regins 4. desember 2012


Hluthafafundur  Regins hf.  verður haldinn í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi,
Austurbakka 2, 101 Reykjavík,  þriðjudaginn 4. desember 2012 og hefst kl.
15.00, stundvíslega. Fundurinn er í salnum Ríma. 

Dagskrá fundarins :

  1. Kosning tveggja nýrra stjórnarmanna
  2. Tillaga lögð fram um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum
  3.  Önnur mál.

Tillögur stjórnar Regins hf.

  1. Kosning tveggja stjórnarmanna. 

Lagt er til að eftirgreindir aðilar sem gefið hafa kost á sér til setu í stjórn
Regins hf. verði kosnir til setu í stjórninni fram að næsta aðalfundi
félagsins: 

Guðrún Blöndal,            kt. 270360-3869

Benedikt Kristjánsson,  kt. 190952-4879



Greinargerð:

Stjórnarmennirnir Fjóla Þ. Hreinsdóttir og Hjördís Halldórsdóttir hafa sagt sig
úr stjórn félagsins og því er nauðsynlegt að kjósa nýja aðila til setu í
stjórninni í þeirra stað. 

  1. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum

Hluthafafundur í Reginn hf. haldinn þann 4. desember 2012 samþykkir með vísan
til 55. greinar hlutafélagalaga nr. 2/1995, að heimila stjórn félagsins á næstu
þremur árum að kaupa hlutabréf í félaginu sjálfu.  Kaupverð bréfanna skal
miðast við síðasta skráða dagslokargengi á markaði áður en samningur um
hlutafjárkaupin er gerður.  Ekki eru sett lágmörk á heimild þessa hvað fjölda
hluta varðar. Félagið og dótturfélög  þess mega aldrei eignast fleiri hluti í
sjálfu sér en lög bjóða, nú 10% af hlutafénu. 

Ofangreind dagskrá og tillögur eru hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins
að Smáralind, 3. hæð, að Hagasmára 1, 201 Kópavogur, frá og með 27. nóvember
2012. Upplýsingarnar eru auk þess aðgengilegar á heimasíðu félagsins, 
www.reginn.is.   Fundargögn verða afhent á fundarstað. 

Kópavogur, 26. nóvember 2012

Stjórn Regins hf.