2013-11-28 17:09:07 CET

2013-11-28 17:10:08 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Regins fyrstu níu mánuði ársins 2013


Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar til 30. september 2013 var samþykktur
af stjórn þann 28. nóvember. 

  -- Rekstrartekjur námu 2.973 milljón króna.

  -- Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 1.833 milljónir
     króna.

  -- Hagnaður eftir  tekjuskatt nam 1.091 milljónum króna. 
  -- Fjárfestingareignir voru metnar á 36.903 milljónir króna 

  -- Vaxtaberandi skuldir voru 23.574  milljónir króna í lok tímabilsins
     samanborið við 19.297 milljónir kr. við árslok 2012.
  -- Handbært fé frá rekstri nam 1.116 milljónum króna.

  -- Eiginfjárhlutfall er 32%.
  -- Hagnaður á hlut var 0,84 samanborðið við 1,04 árið áður.



Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.) Fjöldi hluthafa
við lok september er 636. 

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á fyrri helming ársins 2013 var góð og í samræmi við áætlun
félagsins. Rekstrartekjur námu 2.973 milljón króna og þar af námu leigutekjur
2.590 milljónum króna. Hækkun leigutekna frá sama tímabili fyrra árs eru um
25%. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir nam 1.833
milljónum króna eða sem nemur 72% af leigutekjum sem er í samræmi við markmið
félagsins. Rekstrarhagnaður hefur aukist um 27% samanborið við sama tímabil
2012. 

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu
útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Í lok september 2013 átti Reginn 45
fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var 192 þúsund fermetrar og
þar af voru 172 þúsund útleigjanlegir fermetrar. Útleiguhlutfall
fasteignasafnsins var 98% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Stærstu
eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í
Grafarvogi. 

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers uppgjörtímabils í
tengslum við gerð árshluta og ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt
framtíðar sjóðsflæði einstakra eigna. Matsbreyting á tímabilinu er 845
milljónir króna. 





Stækkun félagsins og horfur

Í febrúar 2013 var gerð breyting á fjárfestingastefnu félagsins, lögð var
frekari áhersla á sterkt eigið fé,  skýra arðsemiskröfu og öryggi í
fjárfestingum.  Í markmiðum  félagsins er gert ráð fyrir að eignasafn félagsins
allt að tvöfaldist á næstu fimm árum. 

Frá hausti 2012 hefur verið unnið að stækkun og styrkingu á eignasafni
félagsins. Á því tímabili hafa verið gerðir samningar um kaup á fimm minni
fasteignafélögum og þremur fasteignum.  Þessi kaup sem öll eru í samræmi við
fjárfestingastefnu félagsins, styrkja tekjugrunn og bæta arðsemi og afkomu. 
Ekki hefur þurft að auka eigið fé félagsins við þessi kaup og er
eiginfjárhlutfall 32% að kaupum loknum. Þann 17. nóvember tilkynnti Reginn um
samkomulag um kaup félagsins á Klasa fasteignum ehf. Gangi þau kaup eftir
verður fjöldi fasteigna í eigu félagsins 54 og heildarfermetrafjöldi um 220
þús. m2. 

Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar
eru um annað en að áætlanir félagsins standist. 

Kynning

Samhliða birtingu á þessu uppgjöri boðar Reginn til opins kynningarfundar
fimmtudaginn 28. nóvember kl. 16:30 í Austurstræti 16, gamla Reykjavíkurapóteki
þar sem Helgi S. Gunnarsson, forstjóri félagsins mun kynna afkomu þriðja
ársfjórðungs 2013. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið
fjarfestatengsl@reginn.is. 

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð
http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/8233725aadbe42d6ad5d06eca75287611d 

Um félagið

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast
rekstur á atvinnuhúsnæði. Félagið er hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð
í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.). Félagið tók til starfa vorið 2009. 

Hægt er að nálgast árshlutareikning þriðja ársfjórðungs og kynningagögn á 
www.reginn.is/fjarfestar/ 



Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262