|
|||
![]() |
|||
2010-05-14 10:21:51 CEST 2010-05-14 10:22:51 CEST REGULATED INFORMATION Kópavogsbær - ÁrsreikningurÁrsreikningur 2009Ársreikningur Kópavogs samþykktur í bæjarstjórn Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2009 var samþykktur á fundi bæjarstjórnar Kópavogs í gær. Þær breytingar voru gerðar á ársreikningnum milli umræðna að færðar voru til eignar lóðir og lendur sem leigutekjur fást af, í samræmi við breyttar reglur reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga. Þetta þýðir að eigið fé í efnahagsreikningi Kópavogsbæjar, hvort sem litið er til A- eða B-hluta, er um 4,5 milljörðum hærri fjárhæð í árslok 2009 en áður var reiknað með, og er því samtals um 10,4 milljarðar. Eiginfjárhlutfallið er þar með um 20%. Eins og áður hefur komið fram setja þeir erfiðleikar sem verið hafa á alþjóðlegum og innlendum fjármálamörkuðum mark sitt á fjárhag Kópavogsbæjar vegna ársins 2009. Þrátt fyrir erfitt rekstrarár, kostnaðarhækkanir og fleira, hefur þó með hagræðingu og útsjónarsemi tekist að halda uppi þjónustustigi í bænum. Rekstrarafgangur af A-hluta var um 1,5 milljarðar að undanskildum fjármagnskostnaði, afskriftum og gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga. Sé hins vegar A og B-hluti ársreikningsins skoðaður er niðurstaðan neikvæð upp á um 4 milljarða. Þar skiptir mestu máli neikvæðir fjármagnsliðir upp á um 3,9 milljarða, bakfærðar tekjur vegna lóðaskila upp á um 900 milljónir og gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga upp á um 415 milljónir. Vert er að geta þess að lóðaúthlutanir framan af ári gengu vel og námu tekjur vegna þeirra um 2,5 milljörðum króna. Þegar upp var staðið voru lóðaskilin hins vegar meiri. |
|||
|