|
|||
2024-07-24 18:00:00 CEST 2024-07-24 18:00:07 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Marel: Uppgjör 2F 2024Marel kynnir afkomu annars ársfjórðungs 2024 (allar upphæðir eru í evrum) Meginatriði
Helstu atriði í afkomu á öðrum ársfjórðungi 2024 (2F24)
Helstu atriði á afkomu á fyrri helmingi ársins 2024 (1H24):
[1] Rekstrarniðurstaða og EBITDA aðlöguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum tengdum yfirtökum (PPA), kostnaði tengdum yfirtökum og einskiptiskostnaði vegna endurskipulagningar. Á fjórða ársfjórðungi 2023 og fyrsta ársfjórðungi 2024 er rekstrarniðurstaða jafnframt leiðrétt fyrir kostnaði tengdum endurskipulagningu á vöruframboði félagsins. Finna má ítarlegri umfjöllun um rekstur og afkomu félagsins í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar sem finna má í viðhengi (íslenska útgáfan veitir aðeins stutt yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal). Árni Sigurðsson, forstjóri Marel: „Það er ánægjulegt að sjá bætta rekstrarframlegð á milli ársfjórðunga í kjölfar þeirra aðgerða sem við höfum farið í til að bæta reksturinn. Rekstrarumhverfið er áfram krefjandi og litað af óvissu sem endurspeglast í lægri mótteknum pöntunum. Við erum hins vegar viss um að rekstrarskilyrði viðskiptavina okkar fari batnandi sem muni skila sér í auknum pöntunum á seinni helmingi ársins, sérstaklega undir lok þessa árs og inn á það næsta. Í ljósi þess hve fyrri hluti árs fer rólega af stað gerum við nú ráð fyrir hóflegum samdrætti tekna á yfirstandandi rekstrarári og að EBITDA framlegð ársins verði 13-14% og EBIT framlegð 9-10%. Til lengri tíma litið og eftir því sem horfur fara batnandi, er ég sannfærður um að leiðandi staða Marel á þeim vaxtarmörkuðum sem félagið starfar og skýr stefna félagsins muni tryggja að markmið okkar til meðallangs tíma náist. Samhliða daglegum rekstri hefur margt mikilvægt gerst á fjórðungnum í tengslum við mögulega sameiningu við JBT en undir lok júní lagði JBT fram valfrjálst yfirtökutilboð í alla hluti í Marel. Við væntum þess að viðskiptin gangi í gegn fyrir lok árs og horfum björtum augum á sameiningu félaganna í því augnamiði að bæta þjónustu við viðskiptavini með hagsmuni allra haghafa að leiðarljósi. Ég vil þakka hinu frábæra starfsfólki Marel um allan heim fyrir sitt mikilvæga starf og áræðni í síbreytilegu rekstrarumhverfi. Saman vinnum við ótrauð áfram að markmiðum okkar og þeirri framtíðarsýn að umbylta matvælavinnslu á heimsvísu.“ Áframhaldandi óvissa til skemmri tíma, uppfærðar horfur fyrir rekstrarárið 2024 Markaðsaðstæður eru áfram krefjandi í ljósi spennu á alþjóðavettvangi, verðbólgu og hárra vaxta sem skapar áframhaldandi óvissu til skemmri tíma. Þetta endurspeglast í lægri mótteknum pöntunum á fyrri hluta árs sem voru undir væntingum. Gert er ráð fyrir bata í mótteknum pöntunum á seinni helmingi ársins í ljósi betri horfa á markaði og rekstrarskilyrða viðskiptavina okkar, sérstaklega í alifuglaiðnaði. Til að ná fram vexti í tekjum og bættri afkomu þarf að byggja upp pantanabók félagsins. Í ljósi þróunar á fyrri árshelmingi hefur Marel endurskoðað horfur sínar fyrir rekstrarárið 2024 og reiknar nú með hóflegum (e. low single digit) samdrætti í tekjum, að EBITDA framlegð ársins verði á bilinu 13-14% og EBIT framlegð verði á bilinu 9-10%. Til meðallangs tíma litið eru horfur óbreyttar. Skortur á vinnuafli og hækkun launakostnaðar hjá viðskiptavinum okkar samhliða aukinni áherslu á sjálfvirkni, róbótatækni og stafrænar lausnir sem tryggja örugg matvæli sem unnin eru á sjálfbæran hátt, munu halda áfram að styðja við vaxtarhorfur félagsins til lengri tíma litið. Afkomufundur með markaðsaðilum – beint streymi Fimmtudaginn 25. júlí 2024 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur í beinu streymi fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Þar munu Árni Sigurðsson forstjóri og Sebastiaan Boelen fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi. Athugið að fundurinn verður eingöngu rafrænn. Fundinum verður streymt beint á Zoom og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn. Skráning fer fram hér. Fjárhagsdagatal
|
|||
|