|
|||
![]() |
|||
2017-01-09 10:00:00 CET 2017-01-09 10:00:00 CET REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 1 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.059.469 eigin hluti að kaupverði 16.359.876 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) --------------------------------------------------------------------------- --------------------------------------------------------------------------- 2.1.2017 12:22:44 19.066 15,30 291.710 3.1.2017 11:11:46 32.000 15,30 489.600 --------------------------------------------------------------------------- 3.1.2017 14:11:38 8.403 15,30 128.566 --------------------------------------------------------------------------- 6.1.2017 11:52:43 54.938 15,45 848.792 --------------------------------------------------------------------------- 6.1.2017 14:59:38 945.062 15,45 14.601.208 --------------------------------------------------------------------------- Samtals 1.059.469 16.359.876 --------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016. Sjóvá átti 56.430.449 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 57.489.918 eigin hluti eða sem nemur 3,68% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 32.797.035 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,10% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 461.633.503 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ Nánari upplýsingar veitir: Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000 |
|||
|