2017-01-10 16:31:02 CET

2017-01-10 16:31:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Útboð ríkisvíxla RIKV 17 0717


Fimmtudaginn 12. janúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokknum RIKV 17 0717 sem er með gjalddaga 17. júlí 2017. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 16. janúar 2017.

Sótt verður um að RIKV 17 0717 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi
mánudaginn 16. janúar 2017. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.