2015-12-08 10:43:03 CET

2015-12-08 10:43:03 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fagfjárfestasjóðurinn REG 1 - Fyrirtækjafréttir

Fagfjárfestasjóðurinn REG 1 - Samþykkt að stækka skuldabréfaflokkinn REG 1 12 1 um 1.500.000.000 og öll stækkunin seld


Fundur eigenda að skuldabréfum í skuldabréfaflokknum REG 1 12 1 fór fram þann
7. desember 2015 kl. 15:00 að Borgartúni 19, 105 Reykjavík.  Mætt var á fundinn
fyrir 99,6% af eigendum skuldabréfaflokksins m.v. fjárhæð og samþykktu allir
stækkun skuldabréfaflokksins um kr. 1.500.000.000,- að nafnverði.  Heildar
útgefið nafnverð verður því kr. 7.000.000.000,-  Allir aðrir skilmálar haldast
óbreyttir. 

Núverandi eigendur skuldabréfaflokksins, sem mætt var fyrir á fundinn, skráðu
sig fyrir þeirri stækkun sem samþykkt var m.v. 3,6% ávöxtunarkröfu.  Gert er
ráð fyrir að flokkurinn verði stækkaður þann 15. desember n.k. 

Frekari upplýsingar veitir Jón Finnbogason (jon.finnbogason@stefnir.is),
forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.