2016-08-25 17:39:21 CEST

2016-08-25 17:39:21 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Síminn hf. - Ársreikningur

Síminn hf. - Betri afkoma milli fjórðunga hjá Símanum


Helstu niðurstöður í rekstri á öðrum ársfjórðungi 2016

  -- Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2016 voru 7.475 milljónir króna samanborið við
     7.482 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  -- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 1.954
     milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 samanborið við 2.062 milljónir
     króna á sama tímabili 2015. EBITDA hlutfallið var 26,1% fyrir annan
     ársfjórðung 2016 en var 27,6% á sama tímabili 2015.
  -- Hagnaður á öðrum ársfjórðungi 2016 var 716 milljónir króna samanborið við
     532 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  -- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.638 milljónir króna á
     öðrum ársfjórðungi 2016 en var 1.691 milljónir króna á sama tímabili 2015.
     Eftir vexti og skatta var handbært fé frá rekstri 1.492 milljónir króna á
     öðrum ársfjórðungi 2016 en 1.432 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  -- Vaxtaberandi skuldir voru 23,6 milljarður króna í lok annars ársfjórðungs
     2016 en voru 24,2 milljarðar í árslok 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir
     voru 21,1 milljarðar króna í lok annars ársfjórðungs 2016.
  -- Hrein fjármagnsgjöld voru 163 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2016 en
     voru 474 milljónir króna á sama tímabili 2015. Fjármagnsgjöld voru 467
     milljónir króna, fjármunatekjur voru 300 milljónir króna og gengishagnaður
     4 milljónir króna.
  -- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 52,4% í lok annars ársfjórðungs 2016 og
     eigið fé 32,5 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Afkoma Símans breyttist til batnaðar milli ársfjórðunga hjá Símanum, eftir
miklar verðlækkanir á farsímamarkaði á fyrsta fjórðungi sem og ófyrirséðar
launahækkanir sem fylgdu SALEK-samkomulaginu. Áskrifendur að nærri ársgamalli
efnisveitu Símans hafa ekki verið fleiri, ungu fólki fjölgaði í viðskiptum við
Símann í gegnum Endalaust fjölskylduáskriftina og reikitekjur hækkuðu svo um
munar. 

Hátt í 100 þúsund heimili eiga orðið möguleika á 100 Mb/s tengingu eða meira
hjá Símanum. Prófanir á 1 Gb/s hraða eru hafnar og Mílu miðar vel áfram í
ljósleiðarauppbyggingu sinni. Þá náði 4G kerfi Símans í lok tímabilsins til 93%
landsmanna. Með Símanum eru fjarskipti á Íslandi á heimsmælikvarða. 

Unnið hefur verið hörðum höndum að hnitmiðaðri rekstri og lægri kostnaði innan
samstæðunnar. Samkeppniseftirlitið samþykkti sölu Símans á Talenta og Staka til
Deloitte á fjórðungnum. Dótturfélögin On-Waves og danskt dótturfélag Sensa
draga afkomu samstæðunnar niður á fyrri helmingi ársins og er rekstur þeirra í
endurskoðun. Þá krefst næsta launahækkun SALEK enn frekara aðhalds í rekstri
Símans sjálfs. 

EM 2016 í Frakklandi setti mark sitt á starfsemina á þessum öðrum ársfjórðungi.
Síminn er stoltur af því að hafa sannað sig sem öflugt afþreyingarfyrirtæki í
sjónvarpi. Byggt verður á styrkum grunni Símans til framtíðar.“​ 

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 (orri@siminn.is)

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 (oskarh@siminn.is)