2013-01-04 09:59:45 CET

2013-01-04 10:00:46 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Gengið frá samningum um tvær Boeing 757-200 vélar


Vegna aukningar í millilandaflugi mun félagið vera með 18 vélar í rekstri
sumarið 2013 samanborið við 16 vélar sumarið 2012.  Gengið hefur verið frá
kaupum á tveimur Boeing 757-200 vélum sem munu bætast við flota félagsins á
næstu mánuðum.  Báðar vélarnar eru á leið í hefðbundið innleiðingarferli  til
að uppfylla staðla félagsins fyrir notkun og verða meðal annars ný sæti og
skemmtikerfi sett í þær báðar. Kaupverðið, sem er trúnaðarmál,  var greitt með
sjóðum félagsins.  Gert er ráð fyrir að báðar vélarnar verði tilbúnar til
notkunar í maí næst komandi. 

Nánari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801