2011-08-21 16:49:50 CEST

2011-08-21 16:50:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning vegna væntanlegrar stefnumótunar íslenskra stjórnvalda


Hitaveita Reykjavíkur og síðar Orkuveita Reykjavíkur hafa unnið að þróun
jarðhitanýtingar í Bitru á Hengilssvæðinu frá því um 1990. Þrjár
rannsóknarholur hafa verið boraðar. Margvíslegar aðrar umhverfisrannsóknir hafa
verið gerðar og opinbert mat á umhverfisáhrifum virkjunar hefur legið fyrir frá
árinu 2008. 

Í drögum að þingsályktunartillögu iðnaðarráðherra um áætlun um vernd og
orkunýtingu landsvæða, sem styðjast við Rammaáætlun um vernd og nýtingu
vatnsafls og jarðhita, er jarðgufunýting í Bitru sett í verndarflokk. 

Bókfært virði eigna og rannsókna OR á svæðinu nemur 785 m.kr. Verði tillagan
samþykkt óbreytt hvað þetta atriði varðar kemur þessi fjárhæð til afskrifta að
mestu leiti.