2014-02-25 19:26:55 CET

2014-02-25 19:27:57 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Ársreikningur

Ársreikningur Regins hf. 2013


·         Rekstrartekjur Regins hf. á árinu 2013 námu 4.043 m.kr.

·         Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 2.474 m.kr.

·         Bókfært virði fjárfestingareigna í lok árs er 40.122 m.kr.
Matsbreyting á árinu var 2.250 m.kr. 

·         Hagnaður eftir tekjuskatt nam 2.434 m.kr.

·         Handbært fé frá rekstri nam 1.641 m.kr. á árinu 2013.

·         Vaxtaberandi skuldir voru 24.837 m.kr. í lok árs 2013 samanborið við
19.297 m.kr. í árslok 2012. 

·         Eiginfjárhlutfall er 33%.

·         Hagnaður á hlut á árinu 2013 var 1,87 samanborið við 1,57 árið áður.



Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.), fjöldi hluthafa í
árslok 2013 var 619. Vorið 2013 seldi Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf., 25%
hlut sinn í félaginu. 

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á árinu 2013 var góð og í samræmi við áætlun félagsins.
Rekstrartekjur námu 4.043 milljón króna og þar af námu leigutekjur 3.524
milljónum króna sem samsvarar 24% hækkun samanborið við árið 2012.
Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir / EBITDA var
2.474 m.kr. sem samsvarar 25%  hækkun samanborið við árið 2012. 

Stjórn félagsins leggur til að ekki verður greiddur arður á árinu 2014.
Aðalfundur félagsins verður haldinn 8. apríl nk. 

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu
útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Í lok árs 2013 átti Reginn 45
fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var 192 þúsund í árslok og
þar af voru 172 þúsund útleigjanlegir fermetrar. Útleiguhlutfall
fasteignasafnsins er um 98% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Stærstu
eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í
Grafarvogi. 

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers árs í tengslum við
gerð ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt framtíðar sjóðsflæði
einstakra eigna. Matsbreyting á árinu 2013 er 2.250 m.kr. 

Stækkun félagsins og horfur

Í febrúar 2013 var gerð breyting á fjárfestingastefnu félagsins, lögð var
frekari áhersla á sterkt eigið fé og skýra arðsemiskröfu. Í markmiðum félagsins
er gert ráð fyrir að eignasafn félagsins allt að tvöfaldist á næstu fimm árum
frá samþykkt fjárfestingastefnu. 

Frá hausti 2012 hefur verið unnið að stækkun og styrkingu á eignasafni
félagsins. Á því tímabili hafa verið gerðir samningar um kaup á fimm minni
fasteignafélögum og tveimur fasteignum. Þessi kaup sem öll eru í samræmi við
fjárfestingastefnu félagsins, styrkja tekjugrunn og bæta arðsemi og afkomu.
Félögin sem keypt voru eru: Stórhöfði ehf., Goshóll ehf., Almenna
byggingafélagið ehf., Summit ehf. og VIST ehf. Auk þess keypti félagið tvær
stakar eignir Ofanleiti 2 og Austurstræti 16. Umfangsmiklar framkvæmdir hafa
átt sér stað í Ofanleiti að undangengnum leigusamningi við Verkís. Auk þess
gerði félagið leigusamning við Kea hótel um Austurstræti 16 en framkvæmdir á
húsnæðinu munu hefjast á næstunni. 

Ekki hefur þurft að auka eigið fé félagsins við þessi kaup og er
eiginfjárhlutfall 33% í lok árs. 

Þann 17. nóvember sl. tilkynnti Reginn um samkomulag um kaup félagsins á Klasa
fasteignum ehf. Kaupin voru samþykkt á hluthafafundi hjá Regin þann 11. febrúar
sl. og er beðið ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins. Gangi kaupin endanlega eftir
verður fjöldi fasteigna í eigu félagsins 54 og heildarfermetrafjöldi um 220
þús. m2. 

Horfur í rekstri

Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar
eru um annað en að áætlanir félagsins standist. 

Við árslok 2013 tilkynnti félagið um skilmála varðandi endurfjármögnun á Reginn
Atvinnuhúsnæði ehf. en fjármögnuninni lauk endanlega í janúar 2014. Áður hafði
félagið lokið við endurfjármögnun á Egilshöll (Knatthöll og Kvikmyndahöll) og
Smáralind (Eignarhaldsfélagið Smáralind) árið 2012. 

Kynning á félaginu

Samhliða birtingu á þessu uppgjöri boðar Reginn til opins kynningarfundar
miðvikudaginn 26. febrúar kl. 8:30 í Austurstræti 16 (gamla Reykjavíkurapótek).
Helgi S. Gunnarsson forstjóri félagsins mun kynna afkomu ársins 2013 og svara
spurningum. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið
fjarfestatengsl@reginn.is. 

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/addcb9e752914d52b21f718cfd6f854c1d



Ársreikningur Regins hf. 2013. var samþykktur af stjórn þann 25. febrúar. Hægt
er að nálgast ársreikning félagsins á www.reginn.is/fjarfestar/ 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262