2009-11-06 12:56:26 CET

2009-11-06 12:57:56 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Skráningu á 29.500.000 nýjum hlutum lokið



Ekki  til  útgáfu  eða  dreifingar  í  Ástralíu,  Kanada,  Japan  eða
Bandaríkjunum.

                                       Fréttatilkynning frá Össuri hf
                               Reykjavík, 6. nóvember 2009; GMT 11:15



              Skráningu á 29.500.000 nýjum hlutum lokið


Vísað er til kauphallartilkynningar, dags. 3. nóvember 2009.

Skráningu á   hlutafjáraukningu  vegna  útboðs Össurar  hf.  á  nýjum
hlutum að nafnvirði 29.500.000 kr. er lokið. Hlutafjáraukningin hefur
verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá.  Hlutafjáraukningin nemur um 7,0%  af
hlutafé Össurar hf.  fyrir útboðið  og um 6,5%  af hlutafé  félagsins
eftir  aukninguna.  Eftir  aukninguna  nemur  heildarhlutafé  Össurar
452.500.000 hlutum,  að  nafnvirði  1  kr. á  hlut,  sem  svarar  til
452.500.000 kr. að nafnvirði.


Nýju hlutirnir verða skráðir undir núgildandi auðkenni bréfa  Össurar
hjá NASDAQ OMX á Íslandi og NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, IS0000000040,
þann 9. nóvember 2009.
Nánari  upplýsingar   er   að   finna  á   heimasíðu   Össurar   hf.:
www.ossur.is/investors

Nánari upplýsingar veita:
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664-1044

*****

Tilynning þessi er ekki  tilboð um sölu  verðbréfa í Bandaríkjunum.
Verðbréf má  ekki  bjóða  til  sölu  eða  selja  í  Bandaríkjunum  án
skráningar eða undanþágu  skv. bandarískum  verðbréfalögum frá  1933,
með áorðnum breytingum.  Útgefandi  verðbréfanna hefur ekki skráð  og
hefur ekki áform um  að skrá neinn hluta  útboðsins í Bandaríkjum  og
hyggst ekki bjóða út verðbréf opinberlega í Bandaríkjunum.
Tilkynningu þessari er aðeins  dreift til og  beinist aðeins til  (i)
aðila utan  Bretlandseyja  eða (ii)  aðila  sem eru  fagfjárfestar  í
skilningi   e-liðar   1.   mgr.   2.   gr.   tilskipunar   2003/71/EB
("Evróputilskipunarinnar um  útboðs- og  skráningarlýsingar") og  sem
eru annað hvort  (x) fagfjárfestar sem  falla undir 5.  mgr. 19.  gr.
breskra laga  um fjármálaþjónustu  og markaði  frá árinu  2000  ("the
Financial Services and  Markets Act 205  (Financial Promotion)  Order
2005") eða (y) fjársterk fyrirtæki, svo og til annarra sem heimilt er
að lögum að dreifa skjalinu til og falla undir a - d-liði 2. mgr. 49.
gr. fyrrnefndra laga (en  allir þeir aðilar sem  nefndir eru í  liðum
(i) og  (ii)  hér  að framan  eru  sameiginlega  nefndir  "viðeigandi
aðilar".  Hinir  nýju hlutir  eru aðeins falir  viðeigandi aðilum  og
aðeins verður  gengið að  boðum,  tilboðum eða  samningum  viðeigandi
aðila um að skrifa sig fyrir, kaupa eða eignast verðbréfin með  öðrum
hætti.  Aðili, sem ekki er viðeigandi aðili, ætti ekki að gera neinar
ráðstafanir á grundvelli þessa  skjals eða reiða sig  á neinn hátt  á
efni þess.
Tilkynning  þessi   er   auglýsing   og  telst   ekki   útboðs-   eða
skráningarlýsing í  skilningi  Evróputilskipunarinnar um  útboðs-  og
skráningarlýsingar ásamt hvers kyns gerðum til innleiðingar hennar  í
viðkomandi aðildarríkjum samkvæmt henni.
Í  aðildarríkjum  Evrópska   efnahagssvæðisins,  sem  innleitt   hafa
Evróputilskipunina um útboðs-  og skráningarlýsingar, er  orðsendingu
þessari aðeins  beint  til  fjárfesta í  viðkomandi  aðildarríki  sem
teljast fagfjárfestar í  skilningi tilskipunarinnar og  á hún  aðeins
erindi við slíka fjárfesta.

*****

Í tilkynningu  þessari er  að finna  tilteknar yfirlýsingar  þar  sem
horft er til framtíðar, þ.m.t. yfirlýsingar um viðskipti félagsins og
útboðið.  Slíkar  yfirlýsingar byggjast á  upplýsingum, ályktunum  og
áætlunum sem af hálfu félagsins eru  taldar raunhæfar.  Þær kunna  að
breytast eða vera  breytt vegna  óvissu sem  tengist efnahagslegu  og
fjárhagslegu  umhverfi   félagsins,   ásamt  lagalegum   atriðum   og
markaðsaðstæðum.  Að auki kunna viðskipti félagsins og geta þess  til
þess að ná markmiðum sínum að  verða fyrir neikvæðum áhrifum ef  einn
eða  fleiri  af  þeim   áhættuþáttum  koma  fram,   sem  lýst  er   í
samantektarskjalinu sem  tekið var  saman  í tengslum  við  skráningu
hlutabréfa Össurar á NASDAQ  OMX í Kaupmannahöfn,  svo og í  kaflanum
sem ber yfirskriftina "Áhættuþættir" í árskýrslu Össurar fyrir  2008,
eða ef  aðrir  áhættuþættir koma  fram,  sem ekki  eru  fyrirséðir  á
þessari stundu eða  taldir eru óverulegir.   Félagið skuldbindur  sig
ekki til þess að ná markmiðum sínum, né tekur það neina ábyrgð á  því
að það muni gerast.   Fjárfestar eru sér í  lagi hvattir til að  gefa
sérstakan gaum að þeim áhættuþáttum sem lýst er í samantektarskjalinu
sem tekið var  saman í  tengslum við skráningu  hlutabréfa Össurar  á
NASDAQ  OMX  í  Kaupmannahöfn,   ásamt  kaflanum  um  áhættuþætti   í
ársskýrslu Össurar fyrir árið 2008.