2014-03-11 15:17:58 CET

2014-03-11 15:18:59 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Hluthafafundir

Framboð til stjórnar Vátryggingafélags Íslands hf. - Aðalfundur 13. mars 2014


Framboðsfrestur til stjórnar Vátryggingafélags Íslands hf. rann út þann 8. mars
sl. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn
félagsins: 

Aðalstjórn

Friðrik Hallbjörn Karlsson.
Fæddur 1966, til heimilis að Bjarmalandi 23, 108 Reykjavík. Hallbjörn lauk
B.sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands 1990, M.Sc. í vélaverkfræði frá
Stanford University 1993 og MBA frá INSEAD í Frakklandi 2000. Hann starfar í
dag við eigin fjárfestingar en hefur einnig setið í stjórn VÍS frá 30. maí
2013. Hallbjörn á óbeint hluti í VÍS gegnum eignarhald sitt í einkahlutafélagi
sem á 5,23% hlut í VÍS. Um er að ræða Hagamel ehf. Hagamelur telst ekki stór
hluthafi. Hallbjörn á einnig 0,008% hlut í VÍS með beinum hætti. Hallbjörn
telst miðað við framangreint óháður. 

Guðrún Þorgeirsdóttir.
Fædd 1979, til heimilis að Barðaströnd 4, 170 Seltjarnarnesi. Guðrún lauk B.Sc.
í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 2003, MBA frá HEC School of
Management 2005 og er löggiltur verðbréfamiðlari. Hún starfar í dag sem
framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunarsviðs Skeljungs hf. en hefur einnig setið í
stjórn VÍS frá 8. desember 2010. Guðrún á 0,0038% hlut í VÍS. Hún er fyrrum
fjárfestingarstjóri Klakka ehf. og telst því háð Klakka ehf. sem er stærsti
núverandi hluthafi VÍS. Hún er óháð VÍS. 

Steinar Þór Guðgeirsson.
Fæddur 1971, til heimilis að Búagrund 7, 116 Reykjavík. Steinar lauk Cand. Jur.
í lögfræði frá Háskóla Íslands 1997 og fékk héraðsdómslögmannsréttindi 1998 og
hæstaréttarlögmannsréttindi 2004. Hann starfar í dag sem hæstaréttarlögmaður á
lögmannsstofunni Íslög ehf. en hefur einnig setið í stjórn VÍS frá 30. maí
2013. Steinar á óbeint hluti í VÍS gegnum eignarhald sitt í einkahlutafélagi
sem á 0,8% hlut í VÍS. Um er að ræða Íscap ehf. Íscap telst ekki stór hluthafi
og Steinar því óháður. 

Helga Jónsdóttir.
Fædd 1967, til heimilis að Smáraflöt 44, 210 Garðabæ. Helga lauk Cand. Jur. í
lögfræði frá Háskóla Íslands 1992 og fékk héraðsdómslögmannsréttindi 1995. Hún
rekur í dag Silfurberg sveitahótel en hefur einnig setið í stjórn VÍS frá 8.
desember 2010. Helga á 0,0025% í VÍS og telst óháð. 

Ásta Dís Óladóttir.
Fædd 1972, til heimilis að Viðjugerði 12, 108 Reykjavík. Ásta lauk BA prófi í
félagsfræði frá Háskóla Íslands 1999, Msc í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla
Íslands 2001 og Ph.D í alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í
Kaupmannahöfn 2010. Hún starfar í dag sem framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar ehf.
en hefur einnig setið í stjórn VÍS frá 30. maí 2013. Ásta á ekki hlut í VÍS og
er óháð. 



Varastjórn

Árni Hauksson.
Fæddur 1966, til heimilis á Spáni. Árni lauk vélaverkfræði frá Háskóla Íslands
1990, M.Sc í vélaverkfræði frá California Institute of Technology 1991 og M.Sc.
í iðnaðarverkfræði frá Stanford University 1992. Hann starfar í dag við eigin
fjárfestingar en hefur verið varamaður í stjórn VÍS frá 30. maí 2013. Árni á
óbeint hluti í VÍS gegnum eignarhald sitt í einkahlutafélagi sem á 5,23% hlut í
VÍS. Um er að ræða Hagamel ehf. Hagamelur telst ekki stór hluthafi. Árni telst
miðað við framangreint óháður. 

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.
Fædd 1978, til heimilis að Hásölum 14, 201 Kópavogi. Ásta lauk Cand. Jur. frá
Háskóla Íslands 2003, fékk héraðsdómslögmannsréttindi 2004 og LL.M. í evrópskum
viðskiptarétti frá Háskólanum í Lundi 2010. Hún starfar í dag sem lögfræðingur
hjá Innanríkisráðuneytinu en hefur verið varamaður í stjórn VÍS frá 30. maí
2013. Ásta á ekki hlut í VÍS og er óháð. 

Brynja Dögg Steinsen.
Fædd 1976, til heimilis að Rauðavaði 3, 110 Reykjavík. Brynja lauk BS í
viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005. Hún starfar á
fjármálasviði Klakka ehf. en hefur verið varamaður í stjórn VÍS frá 30. maí
2012. Brynja telst því háð Klakka ehf. sem er stærsti núverandi hluthafi VÍS.
Hún er óháð VÍS. Brynja á 0,0025% í VÍS. 

Davíð Harðarson.
Fæddur 1976, til heimilis að Dalhúsum 95, 112 Reykjavík. Davíð lauk Cand. Oecon
frá Háskóla Íslands 2000, M.Sc. í fjármálum frá Warrington College UF 2004 og
er löggiltur verðbréfamiðlari frá árinu 2005. Hann starfar í dag sem
fjármálastjóri Elkem Ísland ehf. en hefur verið varamaður í stjórn VÍS frá 30.
maí 2013. Davíð á ekki hluti í VÍS og er óháður. 

Óskar Hauksson.
Fæddur 1973, til heimilis að Mávahlíð 36, 105 Reykjavík. Óskar lauk BS í
viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1997 og löggiltri verðbréfamiðlun í
Bandaríkjunum (National Association of Securities Dealers, Series 7 og Series
63) 2001. Hann starfar í dag sem fjármálastjóri Skipta hf. en hefur verið
varamaður í stjórn VÍS frá 29. mars 2011. Óskar á ekki hluti í VÍS. Hann er
háður stærsta hluthafa VÍS, Klakka ehf. en óháður VÍS. 



Samkvæmt samþykktum Vátryggingafélags Íslands hf. skipa fimm einstaklingar
stjórn félagsins og jafnmargir til vara. 

Ákvæði samþykkta félagsins um kynjahlutföll, sem eru í samræmi við ákvæði
hlutafélagalaga nr. 2/1995 eru uppfyllt með skipan framangreindrar stjórnar.