|
|||
![]() |
|||
2025-03-19 16:30:00 CET 2025-03-19 16:30:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarAÐALMIÐLARASAMNINGARFjármálaráðherra felur Lánamálum ríkisins hjá Seðlabanka Íslands að gera aðalmiðlarasamninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Innlendir aðilar sem hafa starfsleyfi skv. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, hafa nauðsynlegan búnað til þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa og geta sýnt fram á öruggt uppgjör viðskipta hjá Seðlabanka Íslands, geta óskað eftir því að gerast aðilar að samningunum. Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í reglubundnum útboðum ríkisverðbréfa. Einnig fá þeir aðgang að sérstakri fyrirgreiðslu t.d. í formi endurhverfra viðskipta með ríkisbréf, í samræmi við reglur og skilmála. Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á ríkisbréfum og er skylt að setja fram tiltekna lágmarksfjárhæð kaup- og sölutilboða í ríkisbréf, með hliðsjón af hámarksmun sem tilgreindur er í samningunum. Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af aðalmiðlarasamningi. Þeir aðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru beðnir um að senda rafrænt undirritaða samninga til Lánamála ríkisins fyrir klukkan 16:00 föstudaginn 21. mars 2025. Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson forstöðumaður hjá Lánamálum ríkisins í síma 569 9600. Viðhengi ![]() |
|||
|