2025-03-19 17:04:43 CET

2025-03-19 17:04:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Aðalfundur 26. mars - endanlegar tillögur stjórnar


Hinn 5. mars síðastliðinn birti Kvika banki hf. fundarboð til aðalfundar félagsins sem haldinn verður 26. mars næstkomandi kl. 16:00 á Nauthóli í Reykjavík. Samhliða fundarboði voru birtar á heimasíðu félagsins tillögur stjórnar til aðalfundar bankans. Þar kom fram að endurkaupaáætlun stæði yfir og að áætlað væri af hálfu stjórnar að uppfæra tillögu sína um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins til samræmis við stöðu eigin hluta hinn 19. mars 2025. Stjórn Kviku hefur tekið tillit til þess að bankinn á nú samtals 92.041.303 eigin hluti og leggur til að hlutafé bankans verði lækkað um samtals 91.073.340 og samsvarandi breytingar verði gerðar á samþykktum félagsins. Endanlegar tillögur stjórnar til aðalfundar má finna hér.

Til viðbótar er vakin athygli á því að hluthafar eða umboðsmenn þeirra sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig hér eigi síðar en kl. 16.00 þann 24. mars, þ.e. tveimur dögum fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af gildum skilríkjum og umboð, ef við á. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM, hvort sem hluthafar mæta til fundarins á Nauthóli eða taka þátt í rafrænni skráningu.

Nánari upplýsingar um framkvæmd aðalfundar eru aðgengilegar hér auk þess sem öll aðalfundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins, https://www.kvika.is/agm.