|
|||
2012-01-26 00:45:00 CET 2012-01-26 00:45:01 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirVíðtækar aðgerðir til að bæta áhættuvarnir og stjórnarhætti hjá OrkuveitunniReykjavík, 2012-01-26 00:45 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt áhættustefnu fyrir rekstur fyrirtækisins. Jafnframt hefur verið komið á fót endurskoðunarnefnd stjórnar og samið um fjárhagslegar áhættuvarnir gagnvart sveiflum á álverði og vöxtum á erlendum lánum. Um áhættustefnuna Þetta er í fyrsta sinn að stjórnin samþykkir heildstæða áhættustefnu fyrir reksturinn. Öllum rekstri fylgir áhætta og það er stefna stjórnar Orkuveitunnar að í allri starfsemi fyrirtækisins sé gætt að áhættu og með því stuðlað að ábyrgum og skilvirkum ákvörðunum og stjórnunarháttum. Áhættustefnan lýsir heildarsýn og meginmarkmiðum stjórnar að þessu leyti. Hún skilgreinir jafnframt megintegundir áhættu, mælikvarða við mat á þeim ásamt helstu aðferðum, markmiðum og mörkum við daglega áhættustýringu fyrirtækisins. Meginmarkmið stjórnar með áhættustefnunni er að tryggja að OR geti sinnt grunnhlutverki sínu og rækt skyldur sínar með sem minnstri röskun sökum óhagstæðrar þróunar þátta sem falla utan kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Sum úrræði við að draga úr áhættu geta verið svo dýr að ekki þykir réttlætanlegt að grípa til þeirra. Þess vegna snýst áhættustefnan um að finna meðalveg, það er að skilgreina viðunandi mörk og leita bestu leiða til að fyrirtækið geti sinnt grunnþjónustu með sem hagkvæmustum hætti. Stjórn OR samþykkir og ber ábyrgð á áhættustefnunni og áhættunefnd innan fyrirtækisins sér um að framfylgja henni. Hún skal endurskoðuð í það minnsta árlega og stjórn fól forstjóra að kynna hana eigendum OR með frekari þróun hennar í huga. Endurskoðunarnefnd Stjórn Orkuveitunnar hefur einnig sett á fót endurskoðunarnefnd. Hlutverk hennar er meðal annars að hafa eftirlit með vinnulagi við reikningsskil og endurskoðun uppgjörs, eftirlit með innri endurskoðun Orkuveitunnar, áhættustýringu jafnframt því að meta hæfi ytri endurskoðenda fyrirtækisins. Í endurskoðunarnefnd OR voru kjörin þau Sigríður Ármannsdóttir löggiltur endurskoðandi, sem er formaður, Gylfi Magnússon dósent og fulltrúi í stjórn OR og Ingvar Garðarsson löggiltur endurskoðandi. Samið um áhættuvarnir vegna gengis og vaxta Undirbúningur þessara umfangsmiklu aðgerða hefur staðið um hríð. Leitað var samninga við fjármálafyrirtæki um áhættuvarnir. Samningar tókust við hollenska bankann ING og lítur Orkuveitan svo á að með samningnum sé lýst trausti á þá aðgerðaáætlun sem Orkuveitan starfar nú eftir. Óhagstæð þróun álverðs og gengis hefur nú minni áhrif á lausafjárþörf Orkuveitunnar en áður og styrkir stoðir aðgerðaáætlunarinnar. Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar OR: Þessi skref sem stjórn hefur nú stigið miða öll í þá átt að auka stöðugleika og festu í rekstri Orkuveitunnar. Það er fyrirtækinu og orðspori þess líka afar mikilvægt að virt erlent fjármálafyrirtæki sýni stjórnun fyrirtækisins það traust að gera áhættuvarnasamning. Þar geta talsverðir fjármunir verið í húfi. |
|||
|