2015-01-27 15:48:11 CET

2015-01-27 15:49:11 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs desember 2014


Vanskil fóru minnkandi á árinu 2014

Í lok árs 2014 voru 5,49% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá
Íbúðalánasjóði með lán sín í vanskilum. Sambærilegt hlutfall í lok desember
2013 var 7,23% og hefur því heimilum í vanskilum fækkað um 24% á árinu. Þess má
geta að sambærileg vanskilahlutföll lána til heimila hafa lægst farið rétt
niður undir 2% á besta tíma í hagsveiflunni sé litið til síðustu 20 ára. 

Af þeim 46.700 heimilum sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði í lok
árs 2014 voru 2.563 heimili í vanskilum og er það fækkun um 980 heimili á
árinu. 

Yfir 95% af íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs eru í útleigu eða í söluferli

Íbúðalánasjóður seldi 1.066 eignir á árinu 2014 á móti 311 eignum árið áður.
Íbúðalánasjóður átti 1.891 eign í lok desember 2014 en af þeim voru 924 eignir
í sölumeðferð og 875 eignir í útleigu. Sala eigna gekk vel á árinu og áherslan
verður áfram á fækkun eigna í eigu sjóðsins. 



Ítarlegri umfjöllun má lesa í viðauka með meðfylgjandi mánaðarskýrslu