2015-01-29 17:35:45 CET

2015-01-29 17:36:45 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Nýherji hf. - Fyrirtækjafréttir

Nýherji - Félag stofnað um rekstur TEMPO


Rekstur TEMPO verður skilinn frá rekstri TM Software ehf. og stofnað um það sér
fyrirtæki, Tempo Software ehf. 

Markmiðið með aðskilnaði Tempo, sem er verkefnaumsjónar- og
tímaskráningarlausn, frá annarri starfsemi TM Software er að auka sýnileika og
styrkja uppbyggingu TEMPO sem vörumerkis á erlendum vettvangi. „Jafnframt
aukast tækifæri til samstarfs við utanaðkomandi aðila um að styðja við hraðan
vöxt, m.a. með tengslamyndun og fjármögnun á vöruþróun og markaðsstarfi. Eftir
breytinguna verða til tvö afar öflug félög á sviði hugbúnaðarþróunar, með skýrt
afmarkaðar áherslur, vörur og markaðssvæði,“ segir Finnur Oddsson forstjóri
Nýherja. 

Nýtt skipulag TM Software mun skerpa á starfsemi félagsins og auka svigrúm til
þróunar á vörum sem tengjast núverandi sérsviðum, heilbrigðisþjónustu, flug- og
ferðamannaþjónustu, rafrænum viðskiptum og þjónustuvefjum. Hjá félaginu starfa
70 manns. Velta veflausna- og heilbrigðishluta TM Software var 930 mkr á árinu
2014. 

Tempo Software mun einbeita sér að þróun og sölu á TEMPO hugbúnaði á
alþjóðlegum markaði. Fleiri en 6.000 fyrirtæki í meira en 100 löndum nota nú
TEMPO hugbúnaðinn. Velta á árinu 2014 var 740 mkr (um 6 milljónir USD),
samanborið við 400 mkr (rúmlega 3 milljónir USD) árið 2013. Tekjur TEMPO eru í
Bandaríkjadal. Hjá félaginu starfa 50 manns. 

Tempo Software ehf. hefur starfsemi 1. febrúar 2015 og framkvæmdarstjóri þess
félags verður Ágúst Einarsson. Framkvæmdastjóri TM Software ehf. verður Hákon
Sigurhansson. 

Nýherji er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Hjá móðurfélaginu starfa 250
manns en hjá samstæðunni um 458. Dótturfélög Nýherja eru TM Software og
Applicon á Íslandi og í Svíþjóð. 

Nánari upplýsingar:
Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, í síma +354 862 0310