|
|||
![]() |
|||
2015-01-30 17:42:59 CET 2015-01-30 17:44:00 CET REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - HluthafafundirAðalfundur Nýherja hf. 13. febrúar 2015 - TillögurTillaga um ráðstöfun hagnaðar Tillaga stjórnar eins og hún kemur fram í áritum á reikninga félagsins: „Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður til hluthafa árið 2015. Vísað er til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.“ Tillaga um stjórnarlaun Aðalfundur Nýherja hf. haldinn 13. febrúar 2015 samþykkir að laun stjórnarformanns verði kr. 390.000 á mánuði, stjórnarmanna kr. 130.000 á mánuði. Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum skv. 55. grein hlutafélagalaga Aðalfundur Nýherja haldinn 13. febrúar 2015 samþykkir heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en samningur er gerður. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar fellur úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á síðasta aðalfundi félagsins. |
|||
|