2008-12-30 20:48:02 CET

2008-12-31 19:00:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Teymi hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Framkvæmdastjóraskipti hjá IP fjarskiptum ehf (TAL)


Ragnhildur Ágústsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri TAL og tekur við
starfinu af Hermanni Jónassyni sem hefur látið af störfum.  Ragnhildur var áður
forstöðumaður vöruþróunar TAL frá ársbyrjun 2008 og gegndi stöðu
framkvæmdastjóra Ódýra Símafélagsins (SKO) frá árslokum 2006 til ársbyrjunar
2008.  Ragnhildur gegndi lykilhlutverki við stofnun SKO og samruna SKO við TAL
í ársbyrjun 2008. 
TAL er að 51% í eigu Teymis hf.

Um leið og stjórn félagsins býður Ragnhildi velkomna til starfa er Hermanni
þakkað framlag hans til uppbyggingar félagsins og honum óskað velfarnaðar í
framtíðinni.