2010-02-19 15:45:11 CET

2010-02-19 15:46:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612


Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 11 0722:
Alls bárust 14 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 11.755 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 8.755 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,060 (7,13%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 25 0612:
Alls bárust 55 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 17.624 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 1.538 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,305 (7,62%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 23.
febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 24. febrúar 2010.