2015-10-08 10:53:03 CEST

2015-10-08 10:54:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Mosfellsbær - Fyrirtækjafréttir

Mosfellsbær gefur út nýjan skuldabréfaflokk


Mosfellsbær hefur gefið út nýjan skuldabréfaflokk með auðkennið MOS 15 1.
Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf til 40 ára með greiðslu afborgana
og vaxta á 6 mánaða fresti. Uppgreiðsla er heimil að 15 árum liðnum. Gefnar eru
út 500 milljónir að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 3,18% en samkvæmt skilmálum
er hægt að stækka flokkinn frekar. 

Skuldabréfaflokkurinn MOS 15 1 verður gefinn út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu
Íslands hf. mánudaginn 12. október 2015. Skv. skilmálum verða bréfin tekin til
viðskipta á aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. fyrir árslok 2015. 

H.F. Verðbréf hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veitir:
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Sími: 525-6700