2017-02-27 10:00:01 CET

2017-02-27 10:00:01 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 8 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.019.066 eigin hluti að
kaupverði 35.884.608 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning      Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
---------------------------------------------------------------------------
---------------------------------------------------------------------------
 24.2.2017  10:02:18       1.000.000                  17,85      17.850.000
 24.2.2017  10:17:35       1.000.000                  17,70      17.700.000
---------------------------------------------------------------------------
 24.2.2017  13:03:34          19.066                  17,55         334.608
---------------------------------------------------------------------------
Samtals                    2.019.066                             35.884.608
---------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016. 

Sjóvá átti 74.190.770 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
76.209.836 eigin hluti eða sem nemur 4,88% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 50.911.431 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 3,26% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
761.384.812 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 130.945.271
hlutum eða sem nemur 8,38% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má
heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í
gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars
2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000