|
|||
2009-02-09 10:31:43 CET 2009-02-09 10:32:43 CET REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - Niðurstöður hluthafafunda- Niðurstöður aðalfundar Nýherja 6. febrúar 2009Eftirfarandi var samþykkt á aðalfundi félagsins sem haldinn var í ráðstefnusal Nýherja Borgartúni 37, kl. 16.00, þann 6. febrúar 2009: 1. Ársreikningur félagsins var lagður fram og samþykktur samhljóða. 2. Fyrir fundinum lá tillaga um 20% arðgreiðslu. Í máli stjórnarformanns kom fram að í viðræðum við lánardrottna félagsins hafi komið fram tilmæli um að ekki yrði greiddur út arður í ljósi þeirra alvarlegu aðstæðna sem nú ríkja. Stjórnarformaður lagði því af þessu tilefni fram breytingartillögu um að greiða ekki út arð fyrir árið 2008. Breytingartillaga stjórnarformanns var samþykkt samhljóða. 3. Samþykkt var tillaga um stjórnarlaun fyrir starfsárið 2008: Stjórnarformaður kr. 2.550.000, stjórnarmenn kr. 850.000 og varamaður kr. 63.000 fyrir hvern fund. 4. Samþykkt var að eftirtaldir skipi stjórn fyrir næsta starfsár: Benedikt Jóhannesson, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónsson. Samþykkt var að varamaður verði Jafet S. Ólafsson. 5. Samþykkt var að endurskoðandi félagsins verði KPMG Endurskoðun hf. 6. Samþykkt var tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum skv. 55. grein hlutafélagalaga, þar sem stjórn er heimilt fyrir hönd félagsins að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta má ekki vera meira en 20% hærra eða lægra en síðasta skráða gengi í Kauphöll Íslands. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Ný stjórn skipti með sér verkum á stjórnarfundi, sem haldinn var í framhaldi aðalfundar. Benedikt Jóhannesson gegnir stöðu stjórnarformanns. Árni Vilhjálmsson var kjörinn varaformaður. |
|||
|