2012-08-31 10:36:09 CEST

2012-08-31 10:37:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Spölur ehf. - Ársreikningur

Árshlutauppgjör 1. janúar 2012 til 30. júní 2012


  -- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. janúar 2012 til 30.
     júní 2012 nam kr. 33,9 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. janúar 2011 til
     30. júní 2011 nam 53,1 m.kr. Hagnaður Spalar ehf. eftir skatta á öðrum
     ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2012 til 30. júní 2012 nam 66,5
     m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 30,6 m.kr.
  -- Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem
     verðbætur vegna
     vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e.
     2018. Greiðslugeta
     félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 655 mkr. (2010:600 mkr.)
     voru greiddar í
     afborganir og vexti á tímabilinu 1. október 2010 til 31. desember 2011 og
     nauðsynlegt
     umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2011 eins og
     lánasamningar gera ráð fyrir.
  -- Veggjald nam 483 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 435 m.kr.
     árið áður sem er 11% hækkun.
  -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 166
     m.kr. og hækkar um tæpar 25 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 141 m.kr.
  -- Afskriftir á tímabilinu námu samtals 58 m.kr. Samanborið við 62 m.kr. frá
     árinu áður.
  -- Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli tímabila um 2,7 m. kr.
  -- Skuldir Spalar ehf hækka úr 4.079 m.kr. þann 31. desember 2011 í 4.318
     m.kr. þann 30. júní 2012.
  -- Á árinu 2010 veitti Ársreikningaskrá Speli ehf heimild til að breyta
     reikningsári sínu á þann hátt að árslok hvers uppgjörsárs miðast nú við 31.
     desember ár hvert í stað 30. september eins og verið hefur.
  -- Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.



Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu í
samræmi við áætlanir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins. Útlit er fyrir að nokkur
samdráttur verði í umferð undanfarna 2 mánuði miðað við áætlanir og umferð sömu
mánuða síðasta árs, þannig að líkur eru á að núverandi rekstrarár verði að öllu
óbreyttu heldur lakara en áætlanir gerðu ráð fyrir. 

________________________________________________________________________________
_________________ 
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910.