2008-09-30 20:36:25 CEST

2008-09-30 20:37:27 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Moody's tekur lánshæfismat Kaupþings til athugunar vegna hugsanlegrar lækkunar



Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur í dag tekið
lánshæfiseinkunn Kaupþings til athugunar vegna hugsanlegrar lækkunar.
Einkunn vegna langtímaskuldbindinga, A1 og einkunn vegna fjárhagslega
styrkleika, C-, hafa verið teknar til athugunar vegna hugsanlegrar
lækkunar, en Moody's staðfestir á sama tíma einkunn bankans vegna
skammtímaskuldbindinga, P-1.

Að sögn Moody's endurspeglar þessi ákvörðun sífellt veikari
fjárhagsstoðir (e. financial fundamentals) íslenska bankakerfisins í
ljósi skorts á lausafé um allan heim.


Nánari upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri
Fjárstýringar, í síma 444 6126 og Jónas Sigurgeirsson,
framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444 6112.