2009-11-27 20:24:57 CET

2009-11-27 20:25:57 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel Food Systems hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Umframeftirspurn í hlutafjárútboði Marel


Stjórn Marel Food Systems hf. (Marel) ákvað að taka tilboðum að upphæð 7
milljarðar króna, sem jafngildir 38 milljónum evra, eftir velheppnað
hlutafjárútboð á meðal fagfjárfesta sem lauk í dag. Stefnt var að 15% aukningu
en tilboð bárust um kaup á alls 111.136.497 nýjum hlutum, sem jafngildir 18%
aukningu. Ákvað stjórnin að taka öllum tilboðum, sem komu frá íslenskum
lífeyrissjóðum og erlendum og innlendum fagfjárfestum. 

Theo Hoen, forstjóri Marel:
„Ég er ánægður og þakklátur fyrir góða þátttöku innlendra og erlendra fjárfesta
í hlutafjárútboði Marel. Með útboðinu hefur fjárhagsstaða félagsins styrkst enn
frekar.  Framundan er tímabil innri vaxtar og uppskeru eftir vel heppnaðan ytri
vöxt síðustu ára. Áhersla verður nú lögð á að bæta arðsemi rekstrarins og ná
fram allri þeirri rekstrarhagkvæmni sem sameining Marel og Stork býður upp á.“ 

Gengi í útboðinu var kr. 63 á hlut. Með útboðinu leysir Marel til sín 61,8% af
skuldabréfaflokki MARL 06 1 og 17,6% af skuldabréfaflokki MARL 09 1. 

Stjórn Marel hefur í kjölfar útboðsins samþykkt að auka hlutafé félagsins um
111.136.497 hluti. Hlutafjárhækkunin nemur 18% og verður heildarhlutafé Marel
727.136.497 hlutir eftir aukninguna. Gjalddagi hinna nýju hluta er
miðvikudaginn 2. desember næstkomandi. Marel mun óska eftir því að nýju
hlutirnir verði teknir til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland eigi síðar en
miðvikudaginn 9. desember næstkomandi. 

Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd
Marel en tilgangur útboðsins var að styrkja frekar fjárhagsgrunn Marel, draga
úr gengisáhættu og lækka fjármögnunarkostnað. 

Nánari upplýsingar veita: 
- Sigsteinn Grétarsson, framkvæmdastjórn Marel, í síma 563 8072
- Steingrímur Helgason, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, í síma
410 7349 
- Arnar Ragnarsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka, í síma 444
6802 
- Halla Hjartardóttir, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka, í síma 
440 4532 



Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á
heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á
fiski, kjöti og kjúklingi. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.500 manns um allan heim
og starfrækir það skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60
umboðsmanna og dreifingaraðila.