|
|||
2012-05-18 18:19:39 CEST 2012-05-18 18:20:41 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirAðalmiðlarasamningar og viðskiptavakt vegna skuldabréfaflokka RVK 09 1 og RVK 19 1Reykjavíkurborg semur við Íslandsbanka, MP banka og Straum fjárfestingarbanka um viðskiptavakt með skuldabréf Í dag 18. maí 2012 samþykkti borgarráð samninga milli Reykjavíkurborgar og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa Reykjavíkurborgar og viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokknum RVK 09 1 og RVK 19 1, sem undirritaðir voru þann 15. maí 2012 með fyrirvara um samþykki borgarráðs. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Reykjavíkurborgar að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá og með 23. maí 2012 hafa þrjár fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: „Aðalmiðlara með skuldabréf Reykjavíkurborgar“. Þær eru: Íslandsbanki hf., MP banki hf. og Straumur fjárfestingarbanki hf. Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Reykjavíkurborg veitir. Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 09 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 19 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 20 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. Tilboðsskylda aðalmiðlara í flokki RVK 19 1 hefst þann dag sem flokkurinn er skráður í NASDAQ OMX á Íslandi. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal aldrei vera meiri en 1%. Viðskiptavaki skal endurnýja tilboð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið eða þau felld niður. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 150 m.kr. að nafnvirði með RVK 09 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 60 m.kr. að nafnvirði með RVK 19 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. Viðskiptavakt Íslandsbanka hf., MP banka hf. og Straums fjárfestingarbanka hf. gildir frá og með 23. maí 2012. Við undirritun samninganna féllu úr gildi eldri samningar við Íslandsbanka hf. og MP banka hf. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|