|
|||
2024-10-04 19:25:00 CEST 2024-10-04 19:25:02 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÍslandsbanki hf.: Samþykkt skilaáætlunar og ákvörðun um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL) fyrir Íslandsbanka hf.Samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020, skulu fyrirtæki sem falla undir lögin ávallt uppfylla lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL), sbr. 1. mgr. 17. gr. laganna. MREL þarf að uppfylla með hliðsjón af áhættugrunni (e. TREA - total risk exposure amount) og heildarmælistærð áhættuskuldbindinga (e. TEM - total exposure measure). Þá þarf hluti MREL að vera undirskipaður (e. subordinated), þ.e. neðar í kröfuröð en óeftirgefanlegar skuldbindingar. Skilavald Seðlabanka Íslands (skilavaldið) tekur ákvarðanir um MREL við árlega yfirferð skilaáætlunar og uppfærslu hennar. Skilavaldið tilkynnti í dag að skilaáætlun fyrir Íslandsbanka hf. (hér eftir bankinn) hafi verið samþykkt og með því verið tekin ákvörðun um MREL fyrir bankann. MREL er birt án tillits til gildis samanlagðrar kröfu um eiginfjárauka, sem uppfylla þarf samhliða MREL-TREA og kröfu um undirskipan, sbr. fjórða kafla MREL-stefnu skilavaldsins. Miðað við samanlagða kröfu um eiginfjárauka sem bankanum bar að uppfylla miðað við 30. júní 2024 er MREL-TREA bankans 29,5% og undirskipaður hluti MREL bankans 23,4% af áhættugrunni. Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi samþykkt skilaáætlunar og ákvörðun um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055. |
|||
|