2011-10-26 18:03:15 CEST

2011-10-26 18:04:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Orkuveita Reykjavíkur semur um fjármögnun og áhættuvarnir


Reykjavík, 2011-10-26 18:03 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) samþykkti á fundi sínum 21. október 2011 lánasamning við
Lánasjóð sveitarfélaga til að fjármagna yfirstandandi fráveituframkvæmdir á
Akranesi, í Borgarbyggð og á Kjalarnesi. Um tvo lánasamninga er að ræða; 1,6
milljarða króna í íslenskum krónum og allt að 10 milljónir evra, sem svara til
svipaðrar fjárhæðar í íslenskum krónum talið. Lánstími er 10-25 ár með
möguleikum á breytingum til lengingar eða styttingar lánstíma. 

Hluti lánanna er vegna þegar áfallins kostnaðar við fráveituframkvæmdirnar.
Hann nemur nú alls 4,3 milljörðum króna og hefur verið fjármagnaður með
óhagkvæmari hætti en þau kjör sem nú er samið um. 

Samþykkt stjórnar OR var gerð með fyrirvara um staðfestingu eigenda.

Á sama fundi stjórnar var samþykktur samningur við hollenska ING bankann um
áhættuvarnir gagnvart þróun álverðs og vaxta. Markmið samningsins er að draga
úr áhættu OR af hugsanlegri óhagstæðri þróun þessara þátta, sem geta haft
veruleg áhrif á fjárhag OR. Með samningnum dregur OR þannig úr þörf fyrir
lausafé til að geta mætt óhagstæðum sveiflum. 

OR telur að þessir samningar séu til marks um að fjármálastofnanir innanlands
og utan hafi trú á þeirri aðgerðaáætlun, sem OR vinnur nú eftir, og getu
fyrirtækisins til að standa við hana. Samningarnir hafa ekki bein áhrif á
aðgerðaáætlun OR og eigenda frá vorinu 2011 en styrkir framgang hennar.