2009-11-12 11:15:33 CET

2009-11-12 11:16:34 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Moody‘s lækkar lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur


Matsfyrirtækið Moody's hefur gefið Orkuveitu Reykjavíkur lánshæfiseinkunnina
Ba1 og horfur eru taldar stöðugar. Fyrri einkunn OR var Baa1 með neikvæðum
horfum. 
Helsta ástæða breytingar á einkunninni er, að því er fram kemur í frétt
Moody's, lækkun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins, sem endurspeglar
viðvarandi fjárhagslega erfiðleika í kjölfar efnahagshrunsins. 
Breytt einkunn hefur engin áhrif á kjör gildandi lánasamninga Orkuveitu
Reykjavíkur. 
Frétt Moody's er í viðhengi.

frétt moodys.pdf