2008-08-28 19:03:42 CEST

2008-08-28 19:04:42 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Ársreikningur

Árshlutappgjör Eikar fasteignafélags hf.


Eik fasteignafélag hf. birtir í dag sex mánaða uppgjör sitt að loknum
stjórnarfundi þar sem reikningar félagsins voru samþykktir. 

Niðurstaða Eikar fasteignafélags hf. fyrstu sex mánuði ársins 2008:

  • Hagnaður fyrirtækisins nam 357 milljónum króna.
  • Velta var 806 milljónir króna, sem er 16% aukning frá fyrra tímabili.
  • EBITDA var 646,1 milljón króna á tímabilinu, sem er 27% aukning.
  • Arðsemi eigin fjár var 30,2%.
  • Heildareignir félagsins voru að andvirði 18,78 milljarðar króna.
  • Vikjandi fjármagn, þ.e. eigið fé, víkjandi lán og
    tekjuskattsskuldbinding, voru að andvirði 3,95 milljarðar króna.
  • Hlutfall víkjandi fjármagns var 21%.
  • Handbært fé frá rekstri var 255 milljónir króna.

Fjárhagsleg áhætta
Starfsemi Eikar fasteingafélags hf. er fyrst og fremst falin í útleigu húsnæðis
og fjárhagsleg áhætta félagsins því aðallega þar, ásamt áhættu vegna
fjármagnskostnaðar og gengisbreytinga. Staða Eikar fasteignafélags hf. á
leigumarkaði er sterk og mikil ásókn í leiguhúsnæði hjá félaginu. Rekstur
félagsins hefur gengið vel á tímabilinu. Leiguverð á markaði hefur hækkað og
þrátt fyrir samdrátt í þjóðfélaginu hefur félaginu gengið vel að leigja út
húsnæði frá sér og er lítið af óútleigðu húsnæði í eigu þess. 

Hækkandi vextir hafa valdið því að virði eigna miðað við leigutekjur
(„payback“) hefur lækkað niður í 116. Hins vegar hefur útleiga fasteigna gengið
það vel að markaðsvirði eigna félagsins lækkaði ekki. 

Yfirgnæfandi  meirihluti lána félagsins er í íslenskum krónum og með föstum
vöxtum. Á móti erlendum lánum er félagið með leigutekjur í erlendum
gjaldmiðlum. Vaxta- og gengisbreytingar hafa því lítil áhrif á félagið. 

Breytingar á eignarhald á Eik fasteignafélagi hf.
Eik Properties ehf. á nú allt hlutafé í Eik fasteignafélagi hf. jafnframt 100%
eignarhlut í Fasteignafélagi Íslands ehf., 64% eignarhlut í Glitni Real Estate
Fund hf. Saxbygg ehf. er stærsti eigandi félagsins og kjölfestufjárfestir með
um 55% eignarhald, Glitnir með um 43% eignarhlut og aðrir fjárfestar með tæp
2%. Markmið félagsins er að vaxa á næstu árum hér á landi og erlendis með
þátttöku í kaupum á fasteignum og fasteignafélögum og eigendur stefna að
skráningu félagsins þegar fram í sækir. 

Framtíð Eikar fasteignafélags hf.
Í ljósi þess að staða útleigumála hjá fyrirtækinu er mjög sterk og félagið vel
varið gagnvart þeim erfiðu aðstæðum sem skapast hafa á fjármálamarkaði
undanfarin misseri er framtíð Eikar fasteignafélags hf. björt. Fyrirtækið er
vel í stakk búið að takast á við þann samdrátt sem einkennir íslenskt
efnahagslíf um þessar mundir og treysta undirstöður sínar enn frekar. 

Frekari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri Eikar fasteignafélags hf.
S. 590 2200 / 861 3027