2017-08-16 18:22:18 CEST

2017-08-16 18:22:18 CEST


Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Fjárhagsdagatal

Birting uppgjörs annars ársfjórðungs 2017 og kynningarfundur


Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs ársins 2017, fimmtudaginn 24. ágúst n.k. eftir lokun markaða.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn föstudaginn 25. ágúst nk., kl. 08:30 í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti frá kl. 08:15.

Helgi Bjarnason, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.

Bein útsending frá fundinum verður á vefsíðu félagsins: vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/. Þar verður einnig hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins.