2016-03-10 17:31:07 CET

2016-03-10 17:31:07 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Reitir fasteignafélag hf. - Hluthafafundir

REITIR: Endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund 2016. Stjórnarframboð.


Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn þriðjudaginn 15. mars 2016
kl. 16.00 í Þingsal 3 á Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík. 

Hjálagt er dagskrá fundarins og endanlegar tillögur stjórnar sem lagðar verða
fyrir fundinn. Breytingartillaga hefur borist frá Gildi lífeyrissjóði við
tillögu stjórnar um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum og verður hún
tekin fyrir undir lið 4.b á dagskrá fundarins. Er breytingartillagan hér
meðfylgjandi. 

Framboðsfrestur til stjórnar félagsins rann út kl. 16.00 í dag og hafa ekki
borist framboð frá öðrum en núverandi stjórn félagsins. Verður stjórn félagsins
því sjálfkjörin á fundinum, en hana skipa: 

Elín Árnadóttir
Gunnar Þór Gíslason
Martha Eiríksdóttir
Thomas Möller
Þórarinn V. Þórarinsson

Nánari upplýsingar veitir Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320.