2009-01-08 18:59:00 CET

2009-01-08 19:00:13 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbanki Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Fitch hættir lánshæfismati á Landsbanka Íslands hf. (Gamla Landsbanka)



Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag staðfest
lánshæfismatseinkunnir og á sama tíma hætt lánshæfismati á Landsbanka
Íslands hf. (Gamla Landsbanka).  Samhliða hefur Fitch staðfest
lánshæfismatseinkunnir og þar með hætt lánshæfismati á
dótturfyrirtæki bankans í Bretlandi, Landsbanki Heritable Bank Plc.

Fitch mun þar með hætta lánshæfismati og greiningu á gamla Landsbanka
og dótturfyrirtæki hans í Bretlandi.

Rökstuðning Fitch má finna í fréttatilkynningu hér meðfylgjandi.