|
|||
2014-12-15 10:11:51 CET 2014-12-15 10:12:52 CET SÄÄNNELTY TIETO Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.Í 50. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 500.000 eigin hluti fyrir 13,9 m.kr. eins og hér segir: Dagsetning Tími Keyptir Viðskiptav Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir hlutir erð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 12.12.2014 13:37 500.000 27,75 13.875.000 16.518.668 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 500.000 13.875.000 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014. TM hefur nú keypt samtals 16.518.668 hluti í félaginu sem samsvarar 78,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 420,5 milljónum króna. TM á nú samtals 2,17% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson, forstjóri s: 515-2609 sigurdur@tm.is |
|||
|