|
|||
![]() |
|||
2014-02-04 17:01:00 CET 2014-02-04 17:01:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtgáfa á RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboðÍ dag 4. febrúar fór fram gjaldeyrisútboð hjá Seðlabanka Íslands þar sem bankinn bauðst til þess að kaupa evrur gegn afhendingu á ríkisbréfum í verðtryggða flokknum RIKS 33 0321. Aðgerðin sem er liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum mun draga úr árlegri endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir kr. 4.116.520.469 að nafnverði. Samþykkt gengi evru gangvart krónu var 209 í útboðinu. Þann 31. janúar var tilkynnt um fast verð bréfanna sem er 113,346333 kr. með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 7. febrúar 2014 (krafa 2,80%).1 ____________________ 1 Hreint verð (e. clean price) 102,93 |
|||
|