|
|||
2008-05-15 11:32:35 CEST 2008-05-15 11:33:36 CEST REGULATED INFORMATION Alfesca hf. - Ársreikningur- Kynning á niðurstöðum þriðja ársfjórðungs verður miðvikudaginn 21. marsAlfesca birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs fjárhagsársins 2007-08 (jan-mars 2008) 20. maí nk. eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrir fjárfesta, greiningaraðila og fjölmiðla verður haldinn daginn eftir, og þar mun Xavier Govare, forstjóri félagsins fara yfir uppgjörið. Dags: miðvikudagur 21. maí 2007 Staður: Grand hótel Reykjavík Tími: kl. 16:00 Að fundi loknum fá gestir að smakka á nýjum vörum frá Alfesca svo sem kjöti, fiski og rækjum sem eru sérstaklega ætluð fyrir grillveislur sumarsins. Vefvarp frá fundinum má nálgast á vefsíðu Alfesca, www.alfesca.com, við upphaf fundarins. Afrit af kynningum má nálgast á vefsíðu félagsins að fundi loknum. Um Alfesca Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia, Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 616 milljónir Evra og starfsmenn eru um 3,500. Alfesca er skráð í Norrænu OMX-kauphöllinni á Íslandi (OMXI: A). Upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com Nánari upplýsingar veita: Antony Hovanessian framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar í síma 477 7000 Hrefna Ingólfsdóttir forstöðumaður samskiptasviðs í síma 477 7007 Fréttatilkynning þessi er birt á bæði ensku og íslensku. Ef um misræmi er að ræða gildir enski textinn. |
|||
|