|
|||
2009-04-29 10:54:23 CEST 2009-04-29 10:55:24 CEST REGULATED INFORMATION N1 - Ársreikningur- Ársreikningur 2008Afkoma N1 hf eftir skatta neikvæð um kr. 1.111 milljónir árið 2008 Tap N1 hf. árið 2008 er kr. 1.111,0 millj. kr. eftir skatta á móti 860,9 millj. kr. hagnaði árið 2007. Veltufé frá rekstri nam 1.202 millj. kr. árið 2008 en var 1.225 millj. kr. árið 2007. Eigið fé félagsins er 6.361 millj. kr. þann 31.12.2008. Vegna ástands efnahagsmála hefur stjórn N1 ákveðið að auka upplýsingagjöf til fjárfesta. Rekstraryfirlit verður birt á 2ja mánaða fresti og er fyrsta rekstraryfirlitið þegar komið á heimasíðu félagsins. Lykiltölur: sjá viðhengi. Ársreikningur N1 hf árið 2008 Ársreikningur N1 hf. fyrir árið 2008 hefur verið staðfestur af stjórn félagsins og forstjóra. Ársreikningurinn er byggður á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) og hefur samanburðarfjárhæðum verið breytt til samræmis við nýjar reikningsskilareglur. Rekstur Rekstrartekjur félagsins nema 43.765 millj. kr. samanborið við 30.490 millj. kr. árið 2007. Hagnaður fyrir afskriftir og leigugjöld nemur 3.408 millj. kr. samanborið við 2.314 millj. kr. árið 2007. Rekstrartap ársins nam 1.111 millj. kr. eftir skatta á móti 860,0 millj. kr. hagnaði árið 2007. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 3.367 millj. kr. árið 2008 en voru neikvæðir um 355 millj. kr árið 2007. Eignir Bókfært verð eigna félagsins í lok árs 2008 nam 25.298 millj. kr. samanborið við 20.063 millj. kr. í árslok 2007. Fastafjármunir hækka um 4.284 millj. kr. á árinu og nema 12.259 millj. kr. lok þess. Veltufjármunir hafa aukist úr 12.088 millj. kr. í 13.039 millj. kr. Efnahagsreikningurinn stækkar úr 20.063 millj. kr. í 25.298 millj. kr. Eigið fé Eigið fé þann 31. desember 2008 nam 6.361 millj. kr. samanborið við 5.355 millj. kr. þann 31.12.2007. Skuldir Í lok ársins námu heildarskuldir og skuldbindingar 18.937 millj. kr. og þar af námu langtímaskuldir 8.772 millj. kr. Staða og horfur Rekstrarhorfur árið 2009 eru áfram erfiðar vegna óstöðugleika í efnahagsmálum. Kjarnastarfsemi félagsins hefur gengið vel miðað við aðstæður það sem af er árinu 2009 en áfram má búast við erfiðu rekstrarumhverfi. Nánari upplýsingar veita Hermann Guðmundsson forstjóri og Elías Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 440 1000 |
|||
|